VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Gledilegt ar oll somul og takk fyrir gomlu.

02. janúar 2012 klukkan 12:33

Eg vonast til ad geta faert ykkur skemmtilegar frettir vardandi vaentanlegt got i sumar. Thid fylgist med. Hafid thad alveg himneskt med voffunum ykkar. Hvad vaeri lifid an sukkuladimola.

Berglind Gestsdottir

Afmaelis súkkulaðimolar.

22. september 2011 klukkan 09:34
Valshamars Stormur, Valshamars Mocca, Valshamars Líf,Valshamars Skuggi,Valshamars Orion,Valshamars Vaka,Valshamars Vera,Valshamars Freyja,Valshamars Galdur, Valshamars Castro og Valshamars Dagur eiga 2 ára afmæli í dag. Mamman og amman senda innilega hamingjuóskir í tilefni dagsins :) Vonandi gera allir eitthvað dásamlegt í dag :)
Berglind Gestsdottir

FÓTBOLTI

17. september 2011 klukkan 15:29

Nóttin fagra gerir fátt skemmtilegra en að leika með bolta. Við lékum lengi í garðinum með rauða boltann, og  fórum svo í rólega taum göngu á eftir. Veðrið er dásamlegt.
Ég hef ákveðið að fresta goti þar til næsta sumars. Þá verðum við vonandi með spennandi og flott got :)

Berglind Gestsdottir

Altjodleg syning Hrfi. 28.agust 2011

28. ágúst 2011 klukkan 13:10

Valshamars Castro - Garpur var syndur i dag. Hann vakti athygli, enda gridarlega fallegur hundur. Hann syndi sig ofsalega vel, tokk se Ernu Thorsteinsdottur, sem fekk serstaka umsogn domarans i domi Garps fyrir sinn part. Garpur fekk EXCELLENT og flottan dom sem hann a svo sannarlega skilid. Innilega til hamingju Johann og Kristin, og Erna :)

Berglind Gestsdottir

ISAK..........

25. ágúst 2011 klukkan 21:37
...er hja okkur tessa dagana. Hann er nu ad verda 7 og halfs manada. Nott er eins og skugginn hans tegar hann er ad borda........en heldur sig sem lengst i burtu tegar sa stutti leikur lausum hala a golfinu.
Berglind Gestsdottir

EF NÓTTIN FAGRA GÆTI TALAÐ...............

17. ágúst 2011 klukkan 23:15
Þá segði hún svo margt gáfulegt :) Hún verður fallegri og dásamlegri með hverjum deginum. 
Berglind Gestsdottir

PARVÓ.

03. ágúst 2011 klukkan 22:02

Fór með Nótt í Parvo sprautuna í dag. Hún fékk ormalyf í leiðinni.  Er fílhraust  og flottust :)
Á biðstofunni var fólk með "innikött" að þeirra sögn. Þau fengu þá frábæru hugmynd að kynna köttinn fyrir Nótt!
Veit ekki hvort varð hræddara kötturinn eða Nótt þegar kötturinn sem hvæsti fyrir allan peninginn og setti út allar klær..........veit ekki hvað fólkið var að hugsa. En sem betur fer var ég fljót að hugsa og kom líklega í veg fyrir snoppuslys á Nóttinni fögru.  

Berglind Gestsdottir

Í SVAKA FORMI.

22. júlí 2011 klukkan 14:32

Nóttin fagra dvelur mest þessa dagana utan borgarmarkanna undir Valshamri þar sem okkur líður svo best. Nótt er á fullu allan daginn og er í svaka formi.
Þar leikur hún við vinkonu sína Pöndu sem er fjórum árum yngri en miklu stærri og er af kyninu Old English sheepdog. Þær svo fínar saman. Veðrið er búið að vera frábært svo vægt sé til orða tekið.
Hafið það alveg ljómandi. Njótið þess að vera til :)

Berglind Gestsdottir

Valshamars hundum gekk vel á Úlfljótsvatni :)

09. júlí 2011 klukkan 11:18

VALSHAMARS MOCCA tók sig til og vann opna flokkinn hjá tíkunum með EXC og meistaraefni og var valin 3.besta tík sýningarinnar. Síðar sagði dómarinn að hún hefði unnið sýninguna ef hún hefði vitað hvað hún væri ung.
Valshamars Mocca verður ekki tveggja ára fyrr en í september.
Dómurinn hennar er líka glæsilegur.
Ég fékk eigendur Mocca til að skrá hana í opna flokkinn, þrátt fyrir að hún hefði frekar átt að vera í unghundaflokknum og greyið að keppa í fyrsta sinn. Ég hafði hinsvegar svo mikla trú á henni að ég skellti henni í opna flokkinn með ofangreindum árangri :)

Valshamars Castro gekk líka vel. Dómarinn var mjög hrifinn af honum og þótti hann glæsilegur.
Hann fékk glæsilegan dóm og VERY GOOD. ´

Ég er alsæl með súkkulaðimolana mína.

Svo er ég endalaust þakklát henni Ernu Þorsteinsdóttur sem sýndi hundana með svona góðum árangri. :)

 Ég er á því að ég sé með hraustustu og fallegustu brúnu labradorana.

Berglind Gestsdottir

VALSHAMARS VERA /DONNA

19. júní 2011 klukkan 19:12
Hún Valshamars Vera/DONNA leitar að góðu fósturheimili í ca 6 mánuði. Donna verður 2 ára 22.september. Ef þið vitið um gott heimili fyrir hana þá endilega verið í sambandi við hana Ríkey í síma 8922219. Hún gefur ykkur frekari upplýsingar.
Berglind Gestsdottir