Fórum út að SKAUTA
05. mars 2008 klukkan 20:15
Já ætluðum út að ganga, en skautuðum eiginlega frekar. Gangan var skrautleg, þannig að bætt var úr til að Nóttin fengi útrás, með frisbee leik. ÍHAA, það finnst henni stuð. En grasið var blautt og kom illa lyktandi undan snjónum. Heimilisfólkið fitjaði upp á trýnið þegar við komum inn fullar af yndislegu súrefni og sögðu að það væri ógeðsleg lykt af okkur. Ó. Það þýðir BAÐ.
Berglind Gestsdottir
