Hálf vindlaus í dag.
01. apríl 2008 klukkan 23:01
Fékk slæmar fréttir í dag. Aldraður frændi minn liggur fárveikur á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum. Þetta er mikill uppáhaldsfrændi sem mér þykir mjög vænt um. Fyrir mér er hann eilífur, en er það ekki. Ég heimsótti eftir vinnu aldraða systir hans og frænku mína einnig sem mér þykir rosa vænt um. Við Nótt komum því ekki heim fyrr en um kl. 21. Ég fékk mér að borða og var í huganum búin að salta göngutúr dagsins,en eins og alltaf finn ég að það muni gera mér gott að taka aðeins á því.
Kraftgekk góðan Mosó hring og hvuttarnir hlupu með. Nótt fékk svo kvöldmatinn sinn og núna erum við að slaka á.
Kraftgekk góðan Mosó hring og hvuttarnir hlupu með. Nótt fékk svo kvöldmatinn sinn og núna erum við að slaka á.
Berglind Gestsdottir
