Aftur í Hamralíð
09. apríl 2008 klukkan 22:14
Það rættist heldur betur úr veðrinu í dag. Við vorum að drepast úr leiðindum í vinnunni og gátum ekki beðið eftir því að komast út. Víðir grillaði og síðan vorum við farnar. Vaka fór með okkur og upplifði heilu ævintýrin í Hamralíð. Henni fannst við vera í útlöndum. Nótt svo að borða þegar við komum heim, og nú liggur hún alveg skotin á mottunni sinni.
Guðbjörg. Takk fyrir góð ráð. Ég ætlaði að kíkja á síðuna þína í morgun og þar stóð bara CRASHED!
Berglind Gestsdottir

þú verður að fara að skipuleggja göngu! Þetta hljómar svo spennandi hjá ykkur. Snillingarnir hjá bloggar.is eru búnir að setja síðuna upp aftur, þurfti bara að laga smá í kvöld......