Þetta var eitthvað einkennilegt.
13. apríl 2008 klukkan 10:27
Ég lá í allan gærdag, alveg flöt........og ligg ennþá alveg flöt. Náði mér sem sagt í einhverja pest. Ég er alveg eins og aumingi.Missti af veiðiprófinu og allt. Getur einhver uppdeitað mig hvernig fór.. Nótt lætur lítið fyriir sér fara. Hún sér að ég er ekki vænleg til verka í dag.
Berglind Gestsdottir

úff, vona að þér batni fljótt og vel. Ég fór og kíkti á prófið eftir hádegi, en veðrið var ekki mjög skemmtilegt þannig að ég entist ekki lengi (enda búin að rölta í klukkutíma með Ask í slyddunni...) en ég sá tvær alveg frábærar tíkur í úrvalsflokki sækja og sækja og sækja..... dáldið langt þar til við Askur komumst jafnvel í byrjendaflokk........