Það var brjálað að gera hjá okkur Nótt í vinnunni.
18. apríl 2008 klukkan 22:24
Svo bilað að ég varð að setja Nótt ræfilinn inn á baðherbergi í geymslu, því ég var alltaf að afgreiða ca 4 í einu og gat ekki haft augun á henni. Búðin var ein rúst í allan dag, og við vorum í 2 klukkutíma eftir lokun að rétta hana af fyrir morgundaginn. Greip MC donalds á leiðinni heim....alltaf jafn ógeðslegt. Nótt var MJÖG fegin að komast heim.
Berglind Gestsdottir

hljómar verulega þreytandi ;o) En ef þið viljið vera með í Hundalífs veseninu sendu bara tölvupóst á þau: hundalif@hundalif.is. Það er alltaf eitthvað að gerast hjá okkur, svo gaman að vera með þeim. Svo er nú líka ofurgaman að taka þátt í starfsemi dobermann klúbbsins, fullt af fólki sem hefur áhuga á þjálfun... Vonast til að sjá ykkur í öðru hvoru, en ég endurtek, getum við skipulagt göngu með voffana í næstu viku? Kannski á sumardaginn fyrsta?