Náðugt í dag.
19. apríl 2008 klukkan 22:51
Ég fór í vinnuna, en Nótt fékk frí. Víðir grillaði handa okkur ljúfa steik í kvöldmat. Nótt fékk smá. Fórum út að leika og Nótt er alveg sprungt
.
Eitt sem veldur mér áhyggjum þessa dagana, og það er að Tumi tjúinn, sem er þriggja ára og eldri en Nótt hefur verið svo vondur við hana síðustu viku. Þetta er alveg nýtt og ég get ekki tengt þetta við neitt sérstakt. Hann rýkur algjörlega óvænt í hana með látum og glefsi. Nótt er skíthrædd við hann. Ég er alveg ráðalaus.

Berglind Gestsdottir

væri bara gott mál að koma sér í samband við þau í Hundalíf, þau eru öll alveg frábær í að gefa ráð. Ef ekki, hafðu samband við hana Sif á dýraspítalanum í Grafarholti, hún er að sérmennta sig í atferlisfræði dýra..... Tumi óþekki, sennilega að fatta að hann er ekki lengur stærstur ;o)