VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Fjósalykt........alla vega vond lykt. Jukk.

22. apríl 2008 klukkan 12:04
Það er eitt við að fara í lausagöngur.....þ.e. þegar Nótt nær sér í einhverja viðurstyggilega lykt einhversstaðar.
Hún var böðuð í gær og svo í bólið. Gauti var svo búin að henda henni og búrinu fram á gang í morgun, þvi hún lyktaði ennþá eins og svín. Aumingjans Nóttin. Jæja, þá var það bara enn og aftur í bað. Ég er skíthrædd við að baða hana mikið. Hún er nefnilega alveg ferleg í feldinum núna. Hélt hún mundi kannski bara koma sköllótt úr sturtunni. Ullandi
Annars bíð ég spennt þessa dagana yfir því hvort hún ætli sér að lóða núna....eða síðar.
Mér finnst hún vera þrútnari að aftan, en það gæti líka bara verið mitt súperflotta ímyndunarafl.
JÁ þið verðið að afsaka, en myndasíðan hrundi. Er búin að senda póst á umsjónarmenn síðunnar, sem ég vona að geti lagað þetta fyrir mig.
Berglind Gestsdottir
Jebbs, þau eru skemmtileg þegar þau ná sér í spennandi lykt.... ég sendi bara tölvupóst og þeir gerðu við
22. apríl 2008 klukkan 12:23

Skrifa athugasemd