VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Göngutúrnum fórnað.

22. apríl 2008 klukkan 23:29

Fórnaði göngutúrnum í kvöld. Fór strax eftir vinnu að heimsækja yndislegan frænda minn sem ég elska alveg í tætlur. Hann er 89 ára og lá við dauðans dyr fyrir mjög stuttu. Núna er hann bara pirraður yfir því að vera úthaldslaus aumingi, eins og hann segir sjálfur. Hann fór bæði í dag og í gær út í garð að raka lauf........með manneskju á hælunum, því hann er enginn maður í svona lagað. En að gefast upp, er ekki í dæminu. Elskann. Brosandi

Annars fékk ég póst frá góðvini mínu Guðsteini, sem á Úlla pabba Nætur......föðurafi hennar lést á dögunum 15 ára gamall. Guðsteinn á einnig helming í rakkanum sem mig dreymir um að fá á Nótt. Það er gott að eiga Guðstein að í hundaheimum og líka hann Dóra minn.

Þessa dagana eignast ég endalaust af yndislegum vinum. Nú síðast hana Ástu sem á hana Bláskóga Sólu. Ég hlakka hrikalega til að sjá Sólu.  Og aumingja Ásta! við fyrstu kynni drekkti ég henni í hundaumræðu.Glottandi

Mig langar í góðan göngutúr á sumardaginn fyrsta. Hvernig sem viðrar.

 
Berglind Gestsdottir
Guðbjörg GuðmundsdóttirHei! við erum til í göngu á sumardaginn fyrsta! Langan göngutúr.....
Hringdu eða send sms í 8638062...... kannski ok ef þú eyðir númerinu þegar þú ert búin að skrá það hjá þér ;o)
Ég skal koma með myndavél, ég held að Askur og Nótt verði mjög flott saman á myndum.....
23. apríl 2008 klukkan 00:10

Skrifa athugasemd