Animal rescue.
10. maí 2008 klukkan 23:05
Á leiðinni heim keyrði ég fram á bílveltu. Ekkert af neyðarliði var komið. Ég skrölti á Trippen hælunum í sparifötunum, galaði að ég væri hjúkrunarfræðingur og beið færis að komast inn í bílinn hjá konunni. Sat hjá henni í glerbrotum og reyndi að róa hana. Í þessu slysi var líka lítill yndislegur hundur konunnar. Loksins rættist draumurinn minn, eftir að hafa horft á alla animal rescue þættina í sjónvarpinu (animal planet).Ég sat hjá konunni þar til sjúkraliðið barst og bað hana að treysta mér fyrir hundinum. Konan fór í sjúkrabílnum en hundurinn Nemó í bílinn með mér. Ræfilstuskan ofandaði heillengi í sjokki á eftir, en var ótrúlega fljótur að jafna sig. Hændist að Víði sem fékk hann til að borða. Við fórum síðan í góðan göngutúr og Nemó hinn glaðasti. Hann var svo sóttur af syni konunnar núna rétt áðan. Búinn að borða, piss og kúka, fá hreyfingu og allt í goodie. Það var að frétta af konunni, að betur fór en á horfðist og bar hún sig nokkuð vel. Slapp með minniháttar áverka, og engin brot.
Setti tvær myndir af Nemó inn.
Setti tvær myndir af Nemó inn.
Berglind Gestsdottir

Klárt mál mín kæra, þarft að koma aftur á spítalann, okkur vantar fólk eins og þig ;o) Annars var Nemo ótrúlega heppinn að þú komst að, ekki margir hefðu nennt að taka hundinn með sér og bara sent hann á Leirur.....