Henry kom í heimsókn.
15. maí 2008 klukkan 22:12
Mikið ofsalega er hann flottur. Kalli,Agla og stelpurnar komu með Henry í heimsókn. Pörin voru kynnt í ástarhreiðrinu. Nótt var sko EKKI til í tuskið. Hún gelti bara og skammaðist við Henry. Henry var alveg til!. Þau höfðu gott af að hittast aðeins.
Hún varð smám saman afslappaðri gagnvart honum. Þau munu hittast núna á hverjum degi alla helgina.
Verð að segja frá því að Nótt náði að læsa sig og Henry inni í garðskálanum. Víðir þurfti að taka hurðina af hjörunum.
Það verða gerðar ráðstafanir fyrir morgundaginn.

Berglind Gestsdottir

Og hefurðu áhyggjur af því að þetta takist ekki ; D Nótt bara strax farin að læsa að sér með draumaprinsinum......