Ekkert gerist.
21. maí 2008 klukkan 00:22
Jæja við Nótt komum heim upp úr kl. 19 og þá sleppti ég þeim saman.
Hún er farin að lyfta skottinu og stendur svo sem, en Henry rétt reynir aðeins en hættir svo. Ég skyldi þau eftir ein í ca. klst. þá kom Víðir heim. Ég fór nefnilega á Retriever fundinn í Sólheimakoti. Já elskurnar mínar tókst að láta plata mig í hitt og þetta. Verð t.d. Hringvísa..........ég vil nú meina að það sé HRINGSKVÍSA
Og svo er ég komin í sýningarnefnd.......veit ekki einu sinni hvað ég á að gera þar.
. EN. þetta þýðir að nú verð ég að kaupa útivistarskóna, sem mig langar svo í. Ég er búin að gera þrjár tilraunir til að kaupa þá, en starfsfólkið vill ekki selja mér þá sem gönguskó, því þetta séu SNJÓSKÓR
Svo flottir. Þannig að ég ætla að vera Hringskvísa í snjóskóm í Fossatúni.
Eftir fundinn, fór ég út á stóra túnið með "turtildúfurnar" Nótt sótti kong endalaust, meðan ég hljóp nokkra "sýningarhringi" með Henry. Held að það sé gaman að sýna hann. Hann hreyfir sig mjög fallega.
En á morgun fer ég með parið til Katrínar dýra...held hún ætli að taka blóðprufu hjá Nótt til að athuga hvar hún sé í ferlinu...skv. mínum reikningi ætti hún að vera á 12.degi á morgunn. Sjáum til hvað spesinn segir.
Nú eru skötuhjúin gengin til hvílu. Á morgunn er nýr dagur, nýtt upphaf.
Knús.
Hún er farin að lyfta skottinu og stendur svo sem, en Henry rétt reynir aðeins en hættir svo. Ég skyldi þau eftir ein í ca. klst. þá kom Víðir heim. Ég fór nefnilega á Retriever fundinn í Sólheimakoti. Já elskurnar mínar tókst að láta plata mig í hitt og þetta. Verð t.d. Hringvísa..........ég vil nú meina að það sé HRINGSKVÍSA
Og svo er ég komin í sýningarnefnd.......veit ekki einu sinni hvað ég á að gera þar.
Eftir fundinn, fór ég út á stóra túnið með "turtildúfurnar" Nótt sótti kong endalaust, meðan ég hljóp nokkra "sýningarhringi" með Henry. Held að það sé gaman að sýna hann. Hann hreyfir sig mjög fallega.
En á morgun fer ég með parið til Katrínar dýra...held hún ætli að taka blóðprufu hjá Nótt til að athuga hvar hún sé í ferlinu...skv. mínum reikningi ætti hún að vera á 12.degi á morgunn. Sjáum til hvað spesinn segir.
Nú eru skötuhjúin gengin til hvílu. Á morgunn er nýr dagur, nýtt upphaf.
Berglind Gestsdottir

Það verður svo gaman hjá okkur í sýninganefndinni og þú verður náttúrulega flottasta hringskvísan ;-) Stjórnar okkur Aski alveg inn og út...