VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Strok

21. maí 2008 klukkan 16:55
Fór með Nótt í strok. Katrín segir hana seina til. Ef þau smella ekki saman í kvöld, eða fyrramálið þá verður gripið inn í á morgun.
Það gerðist ekkert af viti í kvöld. Sjáum til í fyrramálið. Snúllurnar farnar að lúlla.........skynjið þið vonleysið sem er að grípa um sig.....Skömmustulegur neiiii þetta er allt í góðu. Það mundi bara gleðja mig svo rooooooooooosalega ef þetta mundi nú heppnast allt saman. EN. EKKI ER ÖLL NÓTT ÚTI ENN,.......alltaf svo fyndin og orðheppinSvalur
Berglind Gestsdottir
Sæl Berglind,

Ég myndi nú bíða með að grípa eitthvað inní, ef þau parast ekki núna þá er kannski gild og góða ástæða fyrir því! Hundurinn hefur farið á tíkur áður svo hann veit alveg hvað hann á að gera. Það er alveg nógur tími eftir svo ekkert að vera að stressa sig! :-) Ég veit að það getur verið erfitt en þetta gengur betur ef þú ert ekki stressuð, getur smitað út í Nóttina! :-) Enn og aftur gangi ykkur vel. Þetta gerist á næstu 3-4 dögum eða svo! :-)
21. maí 2008 klukkan 19:19
Já, alls ekki hafa áhyggjur. Okkar reynsla (eigum 5-6 got að baki) er sú að hundarnir eru að parast á 12 - 16 degi og jafnvel seinna. Nú hafa þau haft góðan tíma saman og væntanlega ætti þetta að fara að ganga. Nú og ef þau parast ekki þá verður hún einfaldlega bara sædd, ekkert mál og þú getur verið nokkuð viss um að það komi eitthvað út úr því, þau vita nú alveg hvað þau eru að gera uppi á dýraspítala.
Henrý er búinn að feðra 3 got, 2 venjulega og eitt með sæðingu svo sundgarparnir hans þurfa bara að rata rétta leið.

baráttukveðjur, Agla og Kalli
22. maí 2008 klukkan 10:16

Skrifa athugasemd