Eurovision hömp.
Nótt bömpar og humpar Henry eins og hún eigi lífið að leysa. Það liggur við að maður sé farin að bömpa í takt. Nótt er sem sagt meira og minna að hamast ofan á hausnum á Henry, þangað til hann hreinlega dettur undan henni. Þið segið han
n viti hvenær hún er tilbúin........ég mundi nú segja að hún væri til í tuskið.
Verð að segja ykkur að ég keypti mér langþráðu snjóskóna í dag....
Ef þið hafið fylgst með, þá var ég búin að gera 3 tilraunir til að fá að kaupa þessa skó, en alltaf eiginlega neitað af því þetta væru SNJÓSKÓR. Eftir mislukkaða ferð til dýralæknisins, vorkenndi ég sjálfri mér svo mikið
að ég varð að eignast þessa skó. Nema hvað........þeir voru horfnir úr hillunum. Mér féllust algjörlega hendur og galaði á starfsmanninn.......HVAR ERU SNJÓSKÓRNIR.....þeir voru semsagt orðnir svo leiðir á mér að þeir tóku þá ÚR SÖLU, og skórnir komnir inn á lager. En nú eru skórnir mínir. Víðir sem er mjög reyndur fjalla og útivistarmaður sagði að þetta væru ótrúlega flottir skór, og léttir eins og fis. Sem sagt mjög góðir og alls ekkert endilega snjóskór!
En það er helst að frétta af parinu, að þau eru núna í sitthvoru rýminu, og fá að hittast.......pínustund fyrir háttinn.![]()

Nú hlýtur þetta að fara að koma hjá Nótt og Henry, kannski að hann sé bara svo mikill sjentilmaður að hann fílar ekki skvísu sem gengur svona á eftir honum : D