Nótt Berglindardóttir
26. maí 2008 klukkan 09:43
Verð aðeins að segja frá því...að í gær þá sköruðust aðeins ferðir okkar Víðis...svosem ekkert óalgengt.r
Nema hvað. Víðir fór að sækja strákana í kjósina um kl. 1930 í gær.... og ég kom heim kl. 20. Og byrjaði á því að gefa hundunum að borða. Nótt var þá inni og Henry bundinn úti í góða veðrinu. NEMA HVAÐ. Henry SNERTI ekki matinn sinn.
Víðir hafði þá gefið honum að borða áður en hann fór úr bænum.
Ég var svo HISSA, af því að NÓTT BERGLINDARDÓTTIR hefði sko MOKAÐ í sig aukaskammtinum líka. Vá hvað mér fannst þetta merkilegt að rakkinn skyldi bara algjörlega láta matinn vera.
Já svona var það. Annars var mikið fjör í gærkveldi, með litlum árangri. Ég ætla að skjótast í Víðidalinn og vita hvað þær vilja gera. Annars fæ ég að hafa Henry fram á föstudag....na,nanabúbú
væri alveg til í að eiga hann og honum líður SVO vel hjá okkur.....Nú er Kalli svo upptekinn og hugsar minna til Henrys...Kall varð nefnilega pabbi í fjórða skiptið á laugardags morguninn og fékk fína 17.marka stelpu. Elsku Kalli og Agla INNILEGA TIL HAMINGJU með eitt kraftaverkið enn.
Nema hvað. Víðir fór að sækja strákana í kjósina um kl. 1930 í gær.... og ég kom heim kl. 20. Og byrjaði á því að gefa hundunum að borða. Nótt var þá inni og Henry bundinn úti í góða veðrinu. NEMA HVAÐ. Henry SNERTI ekki matinn sinn.
Víðir hafði þá gefið honum að borða áður en hann fór úr bænum.
Já svona var það. Annars var mikið fjör í gærkveldi, með litlum árangri. Ég ætla að skjótast í Víðidalinn og vita hvað þær vilja gera. Annars fæ ég að hafa Henry fram á föstudag....na,nanabúbú
Berglind Gestsdottir

En ég vona nú að þetta gangi hjá Henry og Nótt, ég er farin að hlakka til að mæta með myndavélina og taka myndir af hvolpaskottunum .......