Fékk að fara upp í sófann
Henry fékk að fara smáááááástund upp í sófann í kvöld.......þá var nú eiginlega ekki pláss fyrir fleiri
. Samt er um að ræða stóran hornsófa sko. Svo klessti hann hausnum ofan á mig og fór fram á strokur og kelerí. Hann er alveg uber ómótstæðilegur.
Henry hefur lagt af í vistinni....held að það sé algengt að rakkarnir geri það, þegar þeir eru í svona "vinnu". Henry mætir því helköttaður og flottur í Fossatúnið.
Hér er megnið af heimilisfólkinu orðið ýmindunarveikt svo ekki sé meira sagt, því spenarnir á Nótt eru farnir að stækka og hún orðin svo kelin osfrv. Þvílíkt bull.
Þetta minnir mann á Nýju fötin keisarans.
Annars er planið framundan eftirfarandi. Henry fer heim á föstudaginn og við taka rólegir göngutúrar og afslapplesi hjá Nóttinni.
Við stelpurnar kíkjum jafnvel í sveitina um helgina.

úff það er alveg spennufall hjá okkur sem erum búin að vera að fylgjast með þessu ástarævintýri ;o) Vonast til að hitta þig í kvöld og fá smá slúður...... Knús á Henrý og Nótt (og Tuma litla líka)