VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hreiður spekúleringar.

29. júní 2008 klukkan 17:00

Fyrir utan endalausar pissuferðir...Nú þarf skvísan að pissa miklu oftar því hvolparnir eru greinilega farnir að pressa á blöðruna hennar, þá virðist hún vera farin að leita sér að got stað. Hún hagar sér voða mömmulega þessa dagana, er alveg afskaplega góð við Gest (heimilisköttinn), sem er nú ekkert sérstaklega upprifinn yfir umhyggjunni. Nótt sleikir hann í bak og fyrir. Það er fyndið að fylgjast með verðandi mömmunni  þessa dagana. Unnur ætlar að taka 5 vikna óléttu mynd af Nótt á eftir.Hlæjandi
Skruppum í ljúfan göngutúr eftir kvöldmatinn.Nótt fékk að lausa hlaupa....já, ég veit það má ekki. Hún stakk sér inn í runna og færði mér heila heimatilbúna samloku sem einhver unglingurinn hefur skilið eftir. Samlokan var í plasti og alles. Ég er mest hissa á að Nótt skyldi ekki hesthúsa samlokuna áður en hún kom til mín.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd