VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Þvagprufa

01. júlí 2008 klukkan 11:28
Góðan daginnHlæjandi Mér leist ekki orðið á tíðni pissuferðanna hjá skvísunni, og sem hjúkrunarfræðingur fékk ég þá flugu í höfuðið að daman gæti hreinlega verið með þvagfærasýkingu. Þannig að þá var að reyna að ná þvagprufu í dollu.
Það gekk upp eftir nokkrar tilraunir,því Nótt fannst undarlegur skyndilegur áhugi minn á mikilli nálægð við þessa ákveðnu athöfn hennar. Eftir tvær tilraunir tókst að ná þessu fína gripna þvagi...í dollu að sjálfsögðu.
Ég brunaði með sýnið til þeirra í Víðidalnum og þvagið stixaðist alveg hreint og fínt. Ég er rólegri yfir þessu og staðfestist þar með að hvolparnir eru að stappa á þvagblöðru mömmu sinnar.Svalur
Framundan er róleg lausaganga, einhverstaðar í nágrenni heimilisins.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd