VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ljúfur göngutúr

01. júlí 2008 klukkan 18:56

Ætli við höfum ekki rölt í rólegheitum, alveg í hálftíma.Nótt var eldspræk og naut þess að hlaupa aðeins úti. En maður sér að hún er farin að verða þyngri á sér blessunin. Ég var mest hrædd um að missa hana í Varmána....ekki viss um að það sé gott fyrir hvolpaskottin að fá kuldasjokk Svalur Ekki minnkaðii það spennuna hjá Nótt, að mikið var um endur syndandi með ungana sína.
Á göngunni hittum við konu með hund sem ég varð að fá að vita hvaða tegundar var.Þetta var sem sagt blanda af íslenskum og einhverjum terrier. Hann var vægast sagt mjög spes. Eins og risastór terrier hundur. Hann nennti nú ekkert að tala við Nótt, hann orðinn 14 ára og grumpy.
Langar til að þakka ykkur sem kíkið við á síðuna okkar. Það er mjög gaman að sjá að einhver nennir að fylgjast með okkur.Glottandi

Berglind Gestsdottir
Ég filgist reglulega með ykkur mæðgum enda er þetta hvolpastand á ykkur jafn spenandi og besta sakamálaserí í imbanum ... Bestu kveðjur í Mosfelsbæinn...Kalli
01. júlí 2008 klukkan 21:44
jonas
 
er ad fylgjast med a fullu ......
02. júlí 2008 klukkan 20:03

Skrifa athugasemd