Vesen með tölvupóstinn.
02. júlí 2008 klukkan 20:55
Sæl verið þið. Það virðist vera eitthvað vesen með netfangið valshamars@live.com þannig að ég vil biðja ykkur að hafa samband á netfangið berglind_1@hotmail.com.
Annars þá vorum við að koma inn úr göngu. Nótt er svo ótrúlega mikil skvísa. Með svo flottar línur, þrátt fyrir bumbuna sem vex og vex.
Hérna heima fyrir erum við farin að giska á fjölda verðandi hvolpa. Það sáust þrír í mjög snöggum sónar um daginn.....en þeir eru pottþétt fleiri. Unnur og Víðir giska á 9...mér finnst það rosa margir![]()
úff! Ég giska á 5.![]()
Nótt fer í rtg. 21.júlí, þá er ca vika í got, og í rtg verða taldar beinagrindur litlu skottanna.
Berglind Gestsdottir
