VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Landsmótið og helgin.

07. júlí 2008 klukkan 01:00
Jæja þá er helgin á enda. Kíktum á laugardaginn á landsmótið.  Djí hvað það voru falleg hross þarna, og meira og minna undan sama stóðhestinum, Orra frá Þúfu. Ég sem áhugamanneskja um vandaða ræktun bara VARÐ að fá að berja Orra frá Þúfu augum. Hann reyndist til sýnis í reiðhöllinni á svæðinu. Hesturinn 22 vetra, og drottinn minn hvað hann var fallegur. Á skilti mátti lesa um hann dóm, um ytra útlit, ganghæfileika, og hversu vænlegur til undaneldis hann er.
Að sjá svona fallegar skepnur ýtti  enn frekar undir áhuga minn á því að rækta fallega og heilbrigða hunda sem ég get látið af hendi stolt til eigenda sinna.
 Mér verður oft hugsað til þess, hvort fólk yfir höfuð hugsi út í heilbrigði dýrs sem það er að eignast. Það er ekki nóg að vera alveg hriiiiiikalega sætur og ómótstæðilegur hvolpur.
Ég er svo ánægð með þessa fyrstu pörun mína og dagarnir líða mjööööööög hægt núna, þeir hreinlega silast áfram.
Nóttin hefur það mjög gott. Það er alveg merkilegt hvað hún fer geyst miðað við ummál sitt.
Henni þykir voða gott að komast í göngur, bara svona léttar hverfisgöngur. Við látum fjalllendi og brekkur alveg vera þessa dagana.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd