Úti
08. júlí 2008 klukkan 12:53
Nú er Nótt að verða meiri og meiri um sig. Henni er heitt og finnst gott að vera úti á palli í svalanum og golunni.
Spenarnir stækka með degi hverjum og við erum alltaf öðru hverju að athuga hvort við finnum hreyfingar litlu skottanna í maganum hennar. Hingað til án árangurs. Spennan vex jafnt og þétt, sem og vonin um að allt muni ganga vel þegar þar að kemur.

Berglind Gestsdottir