VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Sigin brjóst og siginn magi.

13. júlí 2008 klukkan 00:28
Elsku Nóttin, nú er hún hætt að breikka, en maginn farinn að síga og spenarnir tútna út.  Já nú er heldur betur farið að styttast í þetta. Gotkassinn er klár og er rúmgóður og fínn. Við eigum orðið dagblöð í marga gotkassa Brosandi. Fullt er til af gömlum sængurfötum sem við komum til með að nota, og framundan er að kaupa þráð, og barna nefsugu. Spritt eigum við til að spritta skæri.
Svo er planið að taka saman gömul handklæði og hafa klár í þurrkarann til að hita fyrir hvolpaskottin. Ég sá á einni heimasíðu hjá ræktanda að hún hefur alltaf tilbúinn  nokkurs konar hitakassa ef einhver hvolpurinn þarf á smá gjörgæslu að halda.
Þá er hún með hitapoka í litlum kassa og setur hvolpana þar. Það er margt hægt að læra af öðrum.
Hún María nágranni minn sem á hana Rympu, er tilbúin að hjálpa mér í gotinu. Það er gott að vita af  því.
Já svo er auðvitað að hafa klárt símanúmerið hjá dýralækninum. Ég er heppin með að hún Ólöf í Víðidalnum verður á vaktinni þegar Nótt á að gjóta. Ég treysti henni rosa vel. Katrín hittir okkur þegar Nótt fer í röntgen 21.júlí, en daginn eftir fer hún í sumarfrí.
Það er nú eiginlega skondin tilhugsun...............en eftir að hafa átt sjálf fjórar meðgöngur og fæðingar að baki, hef ég ALDREI verið eins stressuð og VEL undirbúin og núna, þegar drottningin mín kemur að því að gjóta.
Ég hef lesið einhverssttaðar að tíkurnar bíði með að gjóta þar til eigandinn er heima hjá þeim....og ég ætla rétt að vona að ég verði ekki á VAKT þegar allt brestur á.
Ég er voða fegin að heyra frá ykkur, kæru vinir, og Agla, ekki hræða mig svona....ég bara sé þetta ekki fyrir mér 9 stykki. 5 eru alveg nóg.
Við fórum í Borgarfjörðinn í dag í bústaðinn hjá tengdamömmu. Úff hvað veðrið var boring, en gott fyrir gróðurinn....alltaf að reyna að sjá björtu hliðarnar.Svalur
Þangað til næst. Koss
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd