Sofið í gotkassanum
14. júlí 2008 klukkan 14:53
Ég fór með Nótt í göngutúr í gærkveldi. Hún lausahljóp aðeins og fannst rosa gaman.
Nema hvað svo fórum við að sofa, og þá virtist henni líða mjög illa. Kviðurinn var spenntur og hún mjög óróleg og másandi. Ég hringdi í vakthafandi dýralækni, sem sagði mér að hitamæla hana. Þar væri nákvæmasta mælitækið á hvort hún væri að fara af stað. Hún var eðlileg í hita, sem sagt ekki lækkuð í hita, sem mundi þýða að hún væri að fara að gjóta. Ég hafði sem sagt svo miklar áhyggjur af henni, að ég SVAF í gotkassanum hjá henni.
Í morgun var hún hressari, en nú er það gjörgæsla það sem eftir er.

Berglind Gestsdottir