Rólegheit
15. júlí 2008 klukkan 22:22
Allt er gott að frétta. Nótt á nú orðið erfitt með að finna sér góða stellingu til að liggja í. Það er úr sögunni að liggja á maganum. Nú er það önnur hvor hliðin sem í boði er að liggja á. Fórum alveg sér ferð í Ikea í dag til að kaupa kúru bangsa handa litlu skottunum tilvonandi, en viti menn, einhvern veginn tókst okkur að missa af staðsetningu þeirra í þessari að mér finnst óþolandi verslun, og ekki séns að ég sneri við til að leita að þeim.
Berglind Gestsdottir

Alveg sammála því að Ikea er ein ferlegasta búð landsins... svo stór og svo villist maður alltaf....