VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Sýnilegar hreyfingar.

20. júlí 2008 klukkan 17:27
Ég sit hér og horfi á Nótt sofa. Nú sér maður hvolpaskottin sparka. Kviðurinn hennar gengur í bylgjum.
Það er komin mjólk í spenana. Ég sturtaði Nótt vel og vandlega áðan, og burstaði hana öruggega í hálftíma.
Ég átti bara eina og hálfa matargjöf eftir handa henni í gær, og hugsaði að mér þætti það nú ekki sniðugt að þurfa að skipta um tegund þó ekki væri í nema einn dag. Þannig að ég sendi honum Kjartani hjá PROPAC tölvupóst, og eins og alltaf maturinn kominn heim að dyrum um leið. Alveg ótrúlega góð þjónusta.
Á morgun fer ég á kvöldvakt og þá ætla ég að verða mér úti um hanska grisjur og fleira, sem gæti nýst vel þegar þar að kemur.
Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd