VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Nú hefjast hitamćlingarnar.

20. júlí 2008 klukkan 21:22
Nú er kominn sá tími að fylgjast með hitastigi drottningarinnar. Mælt er með að hitamæla tvisvar á dag síðustu viku meðgöngunnar. Algengt er að hitinn lækki um eina gráðu ca. sólarhring fyrir gotið.
Hitastigið í kvöld er 38 C. Svalur Nú fer þetta að hljóma eins og veðurspáin.
Yfir hundahirðirinn er væntanlegur heim frá útlöndum annað kvöld. Skemmtiferðin hans var á eftirfarandi veg: Á leiðinni út í flugvélinni veiktist hann...og er búin að vera á spítala síðan. Lítið skemmtilegt það. En hann kemur heim á morgun og getur tekið þátt í að hjálpa til við gotið sem vonandi gengur vel og verður til að gleðja hann.
Berglind Gestsdottir
Agla
 
Bíðum spennt eftir niðurstöðum úr röntgen. Ætli sé eitthvað að marka það?

kveðja, Agla
21. júlí 2008 klukkan 14:34
Guđbjörg GuđmundsdóttirSammála Öglu, búin ađ kíkja oft inn í dag til ađ athuga hvort röntgen niđurstöđur séu komnar............
21. júlí 2008 klukkan 19:22
Ég er hissa á að það sé ennþá svona hátt hitastigið! Mjög algengt er að viku fyrir got þá er hitinn í ca: 37°c en fellur rétt niður fyrir 37°c sólarhring fyrir got. Gangi ykkur vel ;-)
21. júlí 2008 klukkan 21:50
Sæl Berglind!
Já ég fór með Fóu í röntgen en hef að öllum líkindum farið of snemma þar sem ekki var hægt að telja hvolpana! Fór samt eftir dag 47.
21. júlí 2008 klukkan 22:32
Guđbjörg GuđmundsdóttirEins og ţú sérđ ertu međ heilan saumaklúbb sem fylgist spenntur međ ;o) .............. takk fyrir innlitiđ og ég bara fylgist áfram spennt međ ....
21. júlí 2008 klukkan 22:44

Skrifa athugasemd