Hreiðurgerð
22. júlí 2008 klukkan 16:05
Við höfum l'atið Nótt gera stykkin sín á bílaplaninu núna síðustu daga, til öryggis svo við missum hana ekki í að gjóta úti í runna......í morgun þegar ég hleypti henni út, gerði hún stykkin sín á réttum stað, en stakk mig svo af inn í garð og lengst inn í stóran runna. Hún svaraði ekki kalli, og það endaði með því að ég stakk mér inn í runnann, og þar var hún búin að grafa stóra flotta holu. Ég náði hennii loksins út úr runnanum og inn.
Hitinn er að falla og hún er móð og másandi með hléum. Nú fer þetta allt að koma hjá henni, vonandi næsta sólarhringinn. Ég leyfi ykkur að fylgjast náið með.
Hitinn er að falla og hún er móð og másandi með hléum. Nú fer þetta allt að koma hjá henni, vonandi næsta sólarhringinn. Ég leyfi ykkur að fylgjast náið með.
Berglind Gestsdottir

Nú verð ég eins og spæta á heimasíðunni þinni ;o) Ég er svo spennt.....