8
Börnin hennar Nætur eru nú 8. Hrikalega falleg öll, samsvara sér flott og öll brún.
Nótt er nú lögst fyrir alveg búin á því, en lengi er von á einum. Síðasti lét bíða eftir sér í 3 klst. Þannig að hver veit.
Kynjaskiptingin er eftirfarandi. 2 tíkur og 6 rakkar.
Mæli með að þið lesið ykkur til um labrador rakka. Mikill misskilningur liggur í því að tíkur séu blíðari. Þær eru einmitt sjálfstæðari og oft minna háðar eigandanum og vilja frekar vera út af fyrir sig meðan rakkarnir eru
miklu hændari að húsbónda sínum. Þetta fann ég þegar ég var með Henry hér í hálfan mánuð. Hann er miklu meiri kelirófa en nokkurntíma Nótt. Sjálf mundi ég velja mér flottan rakka næst.
JÁ og kíkið á myndirnar í albúminu góða.
Takk fyrir stuðninginn öll sömul. Nú er að halda sjó, og vonast til að öllum heilsist vel.

Svo er líka skemmtilegra að sýna rakka.... þeir eru svo stórir og myndarlegir ;o) Ég að vísu hef aldrei átt annað en rakka, og mun fá mér rakka aftur næst ;o)