Fyrsti sólarhringurinn að baki.
24. júlí 2008 klukkan 18:56
Jæja. Þá er krítískur sólarhringur að baki. Hvolparnir tútna út af mjólkinni sem er nú farin að flæða ríkulega til þeirra, og maður sér þá braggast rosa vel með hverjum klukkutímanum. Nótt er að ná nýja hlutverkinu og stendur sig vel. Hún borðar og drekkur út í eitt og veitir ekki af ef hún á að geta séð öllu stóðinu fyrir næringu.
Hún er svo falleg mamma.
.
Tumi er tjúinn á heimilinu. Hann heldur að hann sé pabbinn. Hann sinnir hvolpunum þvílíkt sleikir þá og þrífur í bak og fyrir. Það er líka gaman að fylgjast með þegar hann er að reyna að smala þeim saman ef þeir verða viðskila og hann passar þá þvílíkt vel.
Svo vel að hann ætlaði að fara að urra á mömmuna sjálfa þegar hún kom frá því að næra sig í eitt skiptið. Þá fékk hann nú skammir. Tumi sem er mjög kvöldsvæfur hefur staðið með mér næturvaktirnar og skríður með mér að sofa á morgnana þegar Víðir og krakkarnir taka við.
Takk fyrir fallegar kveðjur kæru vinir. Og Sædís systir yfir hunda ljósmóðir með meiru fær súper þakkir fyrir alla hjálpina.

Berglind Gestsdottir

Það verður gaman að fylgjast með þeim stækka og dafna, manni langar nú bara í eina brúna tík! :-) hehe