VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Vaxa og dafna.

25. júlí 2008 klukkan 09:30
Góðan og glaðan daginn. Hvolpaskottin sem öll vógu um 400 grömm við fæðingu, virðast dafna vel.
Ég var að vigta þau og segir vigtin 500 gr í dag. Það kemur ekki á óvart miðað við áfergjuna í mömmumjólkina. Það er alveg óborganlegt að sjá þau frekjast um spenana. Þetta virðast allt vera hörkutól, og enginn minnimáttar eins og oft vill verða.
Þau hafa öll bönd með ákveðnum litum um hálsinn til sundurgreiningar nema önnur tíkin er band laus.

Tíkurnar hafa fengið ættbókarnöfnin VALSHAMARS-VISKA, og VALSHAMARS VON.

Rakkarnir hafa fengiið ættbókarnöfnin. VALSHAMARS VILJI, VALSHAMARS VASKUR, VALSHAMARS VETUR, VALSHAMARS VIGRI, VALSHAMARS VÖRÐUR, VALSHAMARS VINUR OG VALSHAMARS VÍKINGUR.

Hvolparnir eru nú þegar farnir að eignast nýjar frábærar fjölskyldur sem bíða óþreyjufullar eftir að koma í heimsókn.
Berglind Gestsdottir
Kristín Svala og co.
 


Var að reyna að senda þér póst en fékk hann til baka.
Erum mikið að spá og spökulera og langar mikið að fá að kíkja við tækifæri.
Ertu til í að senda mér línu eða hringja í 8962134

Kv. Kristín Svala
25. júlí 2008 klukkan 20:41
Hæ,hæ Berglind og co.
Hjartanlega til hamingju með alla súkkulaðimolana. Þeir eru bara dásamlegir og guðdómlegir.

Gangi þér vel og góða skemmtun með alla gormana. Ég get lofað þér því að það á eftir að verða brjálað fjör :)

Kærar kveðjur Auður og Tíbráar Tinda gengið
25. júlí 2008 klukkan 23:12

Skrifa athugasemd