600 gr
27. júlí 2008 klukkan 19:06
Í dag segir vigtin 600 gr. Já þeir tútna út þessar elskur. Síðustu nótt svaf ég nú bara í mínu bóli og hugsaði með mér að hér eftir sæi Nótt bara um þetta næturstúss. Hvolparnir eru orðnir svo kröftugir að þeir eru ekki lengi að koma sér á spena ætli þeir sér það.
Nóttin fagra er fyrirmyndarmamma, og það sem mér finnst svo frábært og kemur mér svosem ekki á óvart, er að hún er svo afslöppuð yfir þessu og óstressuð, og ekki til vantraust hjá henni gagnvart mannfólkinu, en það er orðið nokkuð ljóst að Tuma vill hún ekki sjá í kassanum.
Það fer vel um hvolpa og mömmu í gotkassanum í litla herberginu. Herbergið höfum við þó alltaf opið og Nótt gengur út og inn eins og hún vill. Henni líkar þetta fyrirkomulag vel, er mikið frammi hjá okkur, en hleypur inn um leið og hún heyrir kvakið í börnunum sínum. Hún drekkur fleiri lítra á dag, og borðar um eitt kíló af mat daglega.

Berglind Gestsdottir

Það er alltaf jafn gaman að kíkja inn á síðuna ykkar og fylgjast með hvolpaskottunum. Frábært að heyra að allir blómstri og dafni. Skottin litlu eru bara flottust og bíddu bara þetta verður ekki rólegheit endalaust og hlakka til að fylgjast með þegar að fjörið byrjar. Eigið góðan dag.
Hundakveðja María, Þúfa og drengirnir þrír í Lágholtinu.