Sprittbað.
30. júlí 2008 klukkan 01:00
Það var verið að biðja um fleiri myndir. Ég tók fullt af myndum, en einhvern veginn fannst mér þær allar eins og eru inni á síðunni núna, nema hvað hvolparnir eru stærri og feitari. Ég ætla að bíða með að setja inn myndir þar til þeir opna fallegu augun sín, og það styttist óðum í það.
Tíminn líður svo hratt. Hvolparnir eru strax orðnir viku gamlir. Nánasta skyldfólk okkar er nú komið með heimsóknarleyfi, en það liggur við að ég setji alla í spritt BAÐ!. Ég er alveg hrikalega paranoid varðandi smit sem getur borist í hvolpana. Þar er helst að nefna hinn illræmda PARVO vírus. Hvolparnir hafa einhverja vörn frá móður sinni sem er sprautuð reglulega, en það ver þá aldrei þó alveg. Það liggur við að ég sé með fuglaflensu viðbúnað, og það er sko enginn SMÁ viðbúnaður.
Berglind Gestsdottir

er á næturvakt.... er ekki á skralli ;o) Ég veit að margir ræktendur nota Virkon sem á að virka betur á veiruna en venjulegt spritt..... Virkonið fæst m.a. í Garðheimum