Skuggi á sólríkum degi.
31. júlí 2008 klukkan 01:48
Það var skuggi yfir okkur í dag (30.júlí). Í morgun dó einn af yndislegu hvolpunum okkar. Við höldum að Nótt hafi óvart lagst ofan á hann. Þessi litli hvolpur var nefndur Batman á meðal krakkanna, þar sem hann var með hvítan blett á bringunni.
Það er ótrúlegt hvað manni finnst vanta í annars þennan stóra og flotta hóp.
Það verða því einum færri sem eignast hvolp úr þessu vel heppnaða goti. Við höfum gert ráðstafanir til að verja restina af hópnum, og Nótt og gotið aftur komið í gjörgæslu.
Ég var semsagt að koma af vaktinni af spítalanum og er komin á næturvaktina hér heima.
Lífið er hverfult. Njótið þess að vera til maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér.

Berglind Gestsdottir