VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Útilegan mín

03. ágúst 2008 klukkan 02:26

Ég er orðin snillingur í að láta fara vel um mig á uppblásinni tjald dýnu í herberginu hjá hvolpunum.
Kvöldið var skemmtilegt hjá okkur. Góðir gestir og mikið hlegið. Hvolparnir eru farnir að taka lengri lúra, þannig að ég sá mér færi að skella þeim öllum á spenana hjá Nótt núna, áður en ég sofna. Ég vonast til að þessi aðgerð mín þýði að ég fái að sofa til morguns í einum dúr Svalur á tjalddýnunni góðu á gólfinu.
Ég er að horfa á hvolpana í samkeppni um spenana hjá mömmu sinni. Þetta er alveg ótrúleg barátta og ég get sagt ykkur að frekar hálf snúa þeir sig úr hálsliðnum heldur en að missa spenann sinn til einhvers annars. Hvolparnir vega nú hver um eitt kíló, og nú fara litlu augun að líta dagsins ljós í fyrsta sinn. Verð að segja ykkur frá því að hvolparnir eru nú farnir að reyna að stíga í fæturnar.....þeir draga sig áfram í fyrstu. Þeir eru svolítið eins og ofurölvi við þetta brölt sitt og enda oft á hausnum.Hlæjandi Lendingin er þó alltaf mjúk, þar sem æfingarnar fara fram á dýnunni í gotkassanum.

Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd