Göngutúrar
04. ágúst 2008 klukkan 18:56
Jæja þá erum við Nótt búnar að taka upp gamlan sið, og förum í daglega göngutúra. Það er erfitt að sjá hvor okkar er glaðari að komast út og draga að okkur súrefni og brenna smá orku. Hvolparnir eru nú 12 daga gamlir, og við bíðum með óþreyju eftir að þeir opni augun. Það gengur vel með skottin. Þau þyngjast og dafna vel. Vonum að þið hafið haft það skemmtilegt um helgina og allir hafi komið heilir heim.
Berglind Gestsdottir
