Farnir að kíkja
05. ágúst 2008 klukkan 21:21
Nú er farið að glitta í augun. Þetta er svo spennandi. Það er sagt að "fjandinn verði laus" þegar þeir fara að sjá. Þá er aðal missionið að komast út úr gotkassanum.
Við verðum að fara að gera ráðstafanir. Nú styttist í að þeir flytji úr gotkassanum í stærra rými. Reikna með að það verði um næstu helgi. Þegar þeir fara að fá graut,sem er aðeins þyngri í magann en mömmumjólkin, þá munu þeir fara að sofa á næturna í búrum. Það er mjög gott og athugið! Það veitir hvolpinum öryggi að sofa í búri, og hann á líka að vera í búri í bílnum. Semsagt best að búrvenja strax.
Sumum finnst það grimmt, en ég get fullvissað ykkur um það er það alls ekki.
Væntanlegir hvolpaeigendur koma í sína fyrstu heimsókn 12. ágúst. Ég hlakka mikið til að hitta nýju fjölskyldurnar.
Ég mun setja nýjar myndir inn á síðuna í kvöld þegar ég kem af kvöldvaktinni.

Berglind Gestsdottir