Nýjar myndir
06. ágúst 2008 klukkan 22:09
Jæja þá eru loksins komnar nokkrar nýjar myndir. Hvolparnir eru tveggja vikna. Þeir vega nú á bilinu 1200 - 1500 gr. Þeir vaxa ótrúlega hratt...allt of hratt.
Við Vaka fórum út í göngutúr með Nótt og Tuma. Stöldruðum við á hátíðartorginu, og létum Nótt gera hlýðniæfingar. Já það er nokkuð sem þarf að stunda alla hundsævina kæru vinir, ef þið eigið eða eruð að eignast einn.
Við sem sagt létum hana setjast. Sitja kyrra í ansi langan tíma, meðan hún horfði á Vöku fela nammi. Svo var drottningin látin leita, og kölluð til baka. Að lokum æfðum við lausa hælgöngu. Og ég skal bara segja ykkur það, að hún er alveg meiriháttar dugleg.
Gleymi því alveg að við æfðum okkur í að standa. Jú,jú það þarf að æfa það að "standa fín". fyrir sýningarnar.
Nótt er svo ÓTRÚLEGA flott núna, það eina sem við þurfum að gera er að massa hana upp...það gerum við með fjallgöngum og kippa upp spenunum....það gerum við með því að láta hana synda. Ég hlakka til þegar við getum farið að taka vel á því.
Berglind Gestsdottir

en hvolpaskottin eru ótrúlega freistandi.... hlakka til þegar þau verða farin að skottast um, þá ætla ég að fá að koma og taka myndir....