Allir komnir af stað og eru að breytast í skæruliða
09. ágúst 2008 klukkan 11:16
Nú eru hvolparnir búnir að opna augun, uppgötva í sér röddina, og þá miklu snilld að standa í lappirnar og hlaupa hratt..en detta svo yrifleitt. Þeir taka stundum fjöldasöng og spangóla hástöfum. Það er greinilegt að þeir eru að myndast við að fara að leika sér.
Ég er á leiðinni til dýra að kaupa hvolpagraut. Nú þarf að fara að færa þá yfir í stærra rými.
Einn hafði komist út úr gotkassanum í nótt. EUREKA hann var ekkert smá ánægður með sig
Ég er á leiðinni til dýra að kaupa hvolpagraut. Nú þarf að fara að færa þá yfir í stærra rými.
Einn hafði komist út úr gotkassanum í nótt. EUREKA hann var ekkert smá ánægður með sig
Berglind Gestsdottir
