VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

VALSHAMARS LABRADOR VIÐ VÖNDUM OKKUR!

09. ágúst 2008 klukkan 22:33
Ég er svo ánægð þessa dagana, með Nótt og Henry og alla hvolpana þeirra.  Með pörunina, að það skyldi takast að para þessa tvo flottu fulltrúa labradortegundarinnar. Að uppfylla öll heilbrigðisskilyrði osfvr. Ég get ekki hætt að ítreka við ykkur og alla sem ætla að fá sér hreinræktaðan hund að skoða allt sem stendur á bak við hundana. Lesa sér vel til um tegundina og allt sem henni við kemur með tilliti til þess að þið eruð að eignast einn besta vin ykkar til næstu 10 - 12 ára. Vandið valið.
Ég hef lesið mér mikið til um labradorinn,ræktun og ræktendur. Í raun ætti ákvörðun verðandi hvolpa eiganda að hefjast löngu áður en hann/hún sér hvolpinn. Allir hvolpar eru sætir!  Ákvörðunin á að hefjast við fyrstu kynni við ræktandann Góð opin samskipti. Gott upplýsingaflæði og fræðsla.  Aðkoma að heimili ræktandans, er umhverfið snyrtilegt og þrifalegt. Þegar inn er komið er hreint og snyrtilegt. Er aðbúnaður tíkarinnar góður. Er aðstaða hvolpanna góð. Svo kemur eitt geysilega mikilvægt atriði. Er tíkin í góðu jafnvægi.
Er andrúmsloft á heimili ræktandans streitulaust. Lítur tíkin hraustlega út. Líta hvolparnir hraustlega út og heilbrigði í lagi. Eru þeir líflegir og mannelskir. Vandið ykkur.. Það gerum við.Hlæjandi


Berglind Gestsdottir
Sæl: Berglind gaman að allt gangi vel. Nú er ballið að byrja hjá ykkur. Ég kíki daglega á síðuna ykkar. Kv. Af Akranesi.
10. ágúst 2008 klukkan 15:03
Telma Huld
 
Hæ,hæ Berglind

var að lesa þessi síðustu ummæli þín um aðbúnað og ræktun og er innilega sammála þér.
Get vel skilið þig að þú sért ánægð með pörunina, hef sjálf parað Henry við tíkina mína og fékk fullt af yndilslegum litlum skottum og eru litlu tröllin öll að nálgast fyrsta árið og eru bara frábær í alla staði, er sjálf með tvo litla tröllastráka úr gotinu og þvílikt jafnaðargeð sem þeir eru með, Bæði frá móður og ekki síst frá Henry. Þarf endilega að labba til þín og kíkja á litlu skottin.

María, Þúfa og tröllastrákarnir í Lágholtinu.
10. ágúst 2008 klukkan 22:26
Kristín Benediktsdóttir
 
Góðan daginn gott fólk

Miig langar til þess að deila með ykkur hvað við erum ánægð með Valshamarsræktunina.

Það er allt til fyrirmyndar hjá ykkur alveg sama hvar maður drepur niður :)

Aðstaðan er hreint frábær, það fer rosalega vel um hvolpana þar sem þeir eru.

Svo eru þeir svo rólegir og yfirvegaðir sem sýnir að þeir eru í mjög góðu jafnvægi og að einnig

er hugsað svo vel um þá, hreinlætið er algjörlega 100 %

Síðan spillir ekki fyrir viðmótið sem maður fær þegar maður kemur, alltaf tekið á móti manni með hlýju og alúð.

Vorum búin að leita mikið og skoða þegar við fundum ykkur (Valshamars ) og erum rosalega ánægð, gætum ekki verið heppnari þó víða væri leitað.

Einnig erum við mjög ánægð með það hvernig þeir eru afhentir, ss Ættbókarfærðir heilsufarsskoðaðir og bólusettir fyrstu bólusetningu. Með líf,sjúkdóma og slysatryggingu í eitt ár, og start pakka með leikföngum og mat frá PROPAC.


Mæli 100% með öllu sem viðkemur Valshamars Ræktuninni.


Kveðja Kristín,Gunnar og fjölskylda Sandgerði.
01. nóvember 2009 klukkan 09:42

Skrifa athugasemd