VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hringdi í manninn sinn og sagðist koma heim 23.september.!

10. ágúst 2008 klukkan 23:02
Jú alveg satt. Hún Kristín sem er að eignast hann Valshamars Vetur sá hann í fyrsta sinn í dag. Hún hringdi í manninn sinn og sagðist ekki koma heim fyrr en 23.september....um leið og Vetur fær að fara frá mömmu sinni. Skemmtilegt Hlæjandi
Það sem mér finnst svo ánægjulegt er, að hún hefur áhuga á að dýfa sér í hundaheiminn. Taka þátt í sýningum og svoleiðis.
Ég hlakka til að fylgjast með þeim og hitta þau sem oftast.
Annars er það að frétta að það gengur vel með hvolpaskottin. Maður horfir á þá stækka,styrkjast og þroskast. Þetta er afskaplega dýrmæt reynsla og ógleymanleg.
Berglind Gestsdottir
Guðbjörg GuðmundsdóttirAuðvitað hljóta flestir sem fá svona flotta hunda að dýfa sér í djúpulaugina í hundaheiminn ;o) Ég get ekki beðið eftir að fá að koma og mynda..........
11. ágúst 2008 klukkan 00:42
Agla
 
Hæ hæ.

Gott að heyra að allt gengur vel. Það verður gaman að koma og sjá dýrðina, þetta eru alltaf svo mikil bjútí. Kókó okkar er alveg að springa, 9 dagar eftir og allt lítur ljómandi vel út.
Nú fer að líða að því að skæruliðarnir þínir fái að borða, þá byrjar sko fjörið, júhúu.
Gaman að fylgjast með.

baráttu kveðjur, Agla og Kalli
13. ágúst 2008 klukkan 00:01

Skrifa athugasemd