Títuprjóna klær
14. ágúst 2008 klukkan 19:22
Nú þarf að drífa í að klippa af litlu títuprjónaklónum. Mamman er farin að veigra sér við að gefa hvolpunum og vill standa við matargjöfina. Klærnar eru orðnar eins og hvassir títuprjónar sem þeir stinga í mömmu sína þegar legið er á spena.
Hvolparnir fengu graut í morgunn.....það fór svolítið ofaní þá og mikið utan á þá
.
Þeir verða fljótir að ná betri færni við þetta. Ég gaf þeim líka smá auka hvolpamjólk og það var eins með hana. Meira svona staðið og stappað í mjólkinni.
Núna líta þeir út eins og skrýtið dalmatíuafbrigði. Brúnir með hvítum skellum svona hist og her.

Berglind Gestsdottir