FLUTTIR
15. ágúst 2008 klukkan 21:12
Já þá eru hvolparnir fluttir í innri garðskálann í stórt rými sem við stækkum eftir því sem þeir vaxa. Gotkassinn var fluttur yfir, þannig að þeir geta kúrt í honum ef þeir vilja. Svo er komið sag á gólfið. Það finnst þeim sérstakt fyrirbrigði.
Grautarstandið er hafið og subbuskapurinn ólýsanlegur...útskilnaðurinn eykst líka að sama skapi..herre gud, sem dæmi, þá vöknuðu dúllurnar átta allar í einu, stóðu upp og pissuðu gjörsamlega allir í kór.....hvernig er það eru ekki til bleyjur fyrir hvolpa
Já og annað. Við gáfumst upp á böndunum utan um hálsana á hvolpunum. Nú hafa allir hvolparnir neon appelsínu gult naglalakk einhversstaðar á kroppinum sínum.

Berglind Gestsdottir

Nú þurfum við að fara að fá nýjar myndir ;o).........