VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Á svo mikla ást

16. ágúst 2008 klukkan 19:38
Smári, María og frænkan komu í dag að heimsækja hann Valshamars-Vörð/Oliver. Smári er eins og nýbakaður faðir og talar um hvað hann eigi mikla ást handa honum Oliver. Smári lagðist endilangur á gólfið og lék við hvolpaskottið, milli knúsa og kossa.  Myndavélin var með í för sem geymir minningar um hvolpaást, þar til Smári og María koma næst í heimsókn.Koss
Ég á von á því að Valshamars-Vetur verði heimsóttur á morgunGlottandi Svo er von á henni Guðbjörgu vinkonu minni sem á sjarmatröllið ASK, flottasta goldeninn á klakanum, hún ætlar að koma vopnuð myndavélinni sinni, og hefur einna mestan áhuga að ná subbulegum grautarmyndum.Svalur

Annars held ég að við séum að ná taktinum hjá hvolpunum.... Þeir sofa og vakna allir í einu! Þá er pissað alveg AKÚT...þarna komum við inn og skutlum þeim á staðinn þar sem þeir EIGA AÐ PISSA. Eftir það er farið á barinn hjá mömmunni og svo er það grauturinn. Í kjölfar hans er kúkað í steríó.......og aftur komum við sterk inn og skutlum þeim á kamarinn. Eftir þetta allt fara þeir aftur að sofa. Við skiptum út gömlum dagblöðum fyrir ný svo þeir geti vaknað ferskir og endurtekið leikinn.Brosandi
Berglind Gestsdottir
ji, elsku systir - þú hefðir átt að verða fréttaritari þú ert svo fær í þessu. Hjúkrunarfræðifréttaritari er þinn titill í dag :) Knús og koss
16. ágúst 2008 klukkan 20:02
Guðbjörg GuðmundsdóttirHlakka svo til.... ekki til yndislegri lykt en hvolpa og kettlingalykt....... búin að tæma kortið á myndavélinni..... nóg pláss fyrir hvolpamyndir ;o)
sjáumst á morgun mín kæra
17. ágúst 2008 klukkan 00:38
Gaman að allt gangi svona vel. Tók tíma hjá okkur að koma fartölfuni í nothæft horf. Nýar myndir hjá okkur.
Kv. af Akranesi.
18. ágúst 2008 klukkan 17:21
Var að spyrja Bauer hvað væri að frétta af þér... fattaði að ég sakna þín bara heilmikið! Hann benti mér á þessa síðu- hope you dont mind :)

Við tókum okkar fyrstu skref á BMB saman og það var heilmikill karakter sem fór af deildinni með þér. Þú ert kanski að viðhalda hjúkrunarsnilldinni þinni, en ég er alveg búin að kúpla mig út úr þessu (en dauðsakna þess nú samt reglulega)

Þú ert bara komin í hundana sé ég.. og orðin sveitungi minn!!! Er ekki tilvalið að hittast?

Hafðu það sem best
19. ágúst 2008 klukkan 21:05

Skrifa athugasemd