Nýjar myndir.
19. ágúst 2008 klukkan 22:16
Loksins drattaðist ég til að setja inn nýjar myndir. Nú eru hvolparnir að verða skemmtilegir. Miklir karakterar að koma fram. Það er nokkuð ljóst hverjir eru í forystu fyrir grúppunni. Það eru þeir Víkingur og Oliver. Báðir stórir og massaðir. Ágústa og eldri krakkarnir hennar komu í heimsókn í dag að heimsækja krúttið sitt. Þau áttu erfitt með að slíta sig í burtu sem er ekkert skrýtið. Það var svo gaman að fá þau í heimsókn og spjalla um hundauppeldi og svoleiðis. Hlakka til að hitta ykkur aftur.
Annars er allt fínt að frétta af skottunum. Þeir borða orðið hvolpamat 4x á dag og blása út og verða fallegri og fallegri og fallegri.
Berglind Gestsdottir

Nú verða engar afsakanir teknar gildar :o) Þeir eru svo hrikalega flottir.... mig langar svooooo að koma í heimsókn og aðeins að "sniffa" þá og taka myndir...