VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Þeir valhoppa

22. ágúst 2008 klukkan 23:24
Hafið þið sé labrador valhoppa. Það gera hvolparnir mínir. Þeir vaxa svo ótrúlega núna og þroskast svo hratt.
Við hlæjum okkur máttlaus mörgum sinnum á dag yfir vitleysunni í þeim. Sá minnsti í hópnum, við köllum hann alltaf flugmannssoninn....það er flugmaður sem er að eignast hann, sá  hefur heldur betur tekið sig á og er nú orðinn jafningi systkina sinna.Aftur á móti mætti halda að Oliver sé á sterum.  Hann er alveg á við tvo, í stærð og fyrirferð. Elsku Ester og Smári, þið eigið framundan gott verkefni :) nei segi svona, hann er æðislegur Eins og þið segið, hann á eftir að passa vel inn í fjölskylduna.
Ráðherrasonurinn virðist ætla að verða stilltur,prúður og yfirvegaður enda eins gott að koma vel fyrir. Ágústa ég get sagt þér að þú ert að eignast besta einkaþjálfara sem þú hefur hitt hingað til. Glottandi.Ég veit að Kalli og Páll bíða eftir að fá litlu skvísurnar sínar. Páli finnst 4 vikur langar að bíða, en svona er þetta víst. Vetur er alltaf jafn mikið krútt og er rólegaður og yfirvegaður. 
Víkingur og Vilji eru ótrúlega skemmtilegir. Get sagt ykkur að Víkingur ber nafn með rentu.
Hafið það nú gott um helgina. Ég ætla að taka daginn snemma á sunnudaginn, og horfa á úrslitin í handboltanum umvafin hvolpalandsliðinu mínu.................ég á nefnilega landsliðið í labradorhvolpum....þeir eru baaaaara flottastir.Svalur
Berglind Gestsdottir
Ó hvað þeir eru orðnir stórir, maður má ekki missa af einni viku þá eru þeir bara vaxnir um fleiri, fleir sentimetra. Yndislegar myndirnar. Kíkjum eins fljótt og við getum. Knús frá okkur í Kefló - Sædís og Pétur
23. ágúst 2008 klukkan 00:58

Skrifa athugasemd