Mikið um að vera í dag
31. ágúst 2008 klukkan 00:10
Dagurinn er búinn að vera annasamur hjá hvolpunum. Vinkona mín hún Guðbjörg sem á hann Ask yfirsjarm kom og gjörsamlega missti sig yfir hvolpunum. Það er svo gaman að sjá hvað það koma góðar tilfinningar og hlýjar fram hjá öllumi þegar það sér svona fegurð eins og hvolparnir eru. Og að handleika þá, hreint unaðslegt. Hún átti erfitt með að slíta sig frá þeim, eins og allir sem koma til þeirra.
Svo fengum við til okkar vinkonu mína, hana Önnu Maríu Sigurjónsdóttur sem er atvinnuljósmyndari.
Hún kom með þvílíkar græjur með sér og setti upp heilt stúdíó í stofunni hjá okkur. Hún tók alveg æðislegar myndir af hvolpunum og okkur tókst meira að segja að ná af þeim hópmynd
Takk elsku Anna Mæja að gera þetta fyrir okkur. Súpermódelin voru alveg uppgefin eftir myndatökuna og fengu sér sopa hjá mömmu sinni og síðan góðan lúr, þar til Sædís systir og Pétur komu í heimsókn. Þá hófst knúsið og kjassið aftur. Þeir geta tekið endalaust við þessar elskur.
Valshamars-Vilji er búin að eignast fjölskyldu og mun búa á Hvanneyri í sveitasælunni.
Vona að þið hafið haft það rosa gott um helgina og kærar þakkir fyrir að fylgjast með á síðunni....muna að kvitta fyrir komuna, það er umbun fyrir mig að halda úti síðunni. Alltaf gaman að lesa frá ykkur.
Svo fengum við til okkar vinkonu mína, hana Önnu Maríu Sigurjónsdóttur sem er atvinnuljósmyndari.
Hún kom með þvílíkar græjur með sér og setti upp heilt stúdíó í stofunni hjá okkur. Hún tók alveg æðislegar myndir af hvolpunum og okkur tókst meira að segja að ná af þeim hópmynd
Valshamars-Vilji er búin að eignast fjölskyldu og mun búa á Hvanneyri í sveitasælunni.
Vona að þið hafið haft það rosa gott um helgina og kærar þakkir fyrir að fylgjast með á síðunni....muna að kvitta fyrir komuna, það er umbun fyrir mig að halda úti síðunni. Alltaf gaman að lesa frá ykkur.
Berglind Gestsdottir


Við erum svo ólýsanlega hamingjusöm og spennt að vera að fá hann Vilja gullmola. Fáum þriðja strákinn okkar heim 19. sept. Getum ekki beðið:) Þú mátt endilega knúsa og kyssa aðeins litla strákinn okkar frá okkur:)
Bestu kveðjur frá Hvanneyri