AÐ LESA BLÖÐIN
31. ágúst 2008 klukkan 22:13
Þið vitið að það hefur verið dálítið svona mikið að gera hjá mér frá því hvolparnir fæddust, og allt í lagi með það, nema ég komst að því einn daginn að ég hef ekki lesið blöðin lengi. Glefsurnar sem ég næ af því sem er að gerast úti í þjóðfélaginu og úti í hinum stóra heimi, les ég um leið og ég tek í sundur dagblöðin og raða þeim hjá hvolpunum. Það er svolítið kómískt en ég er farin að skanna blöðin þannig, að ég pikka út og nota ekki síður sem eru með myndum af einhverjum sem ég þekki. Ég get ekki hugsað mér að láta hvolpana p og k. á hvern sem er
.....jú jú, maður er soldið bilaður.
Berglind Gestsdottir
