Stoltur ræktandi hún Berglind
Valshamars - Víkingur mun búa í Hafnarfirði.
Valshamars - Vilji mun búa á Hvanneyri.
Valshamars -Vörður mun búa í Grafarvogi.
Valshamars- Vetur mun búa í Keflavík.
Valshamars - Vaskur/Oliver mun búa í Grafarvogi.
Valshamars - Vinur mun búa á Grettisgötu.
Valshamars skvisurnar Viska og Von eiga vísan samastað bara ekki klárt hvor hver hvað.
Og það sem er best við þetta allt er að þeir verða ekkert svo langt í burtu frá mér, sem mun vilja fá að fylgjast með og heimsækja þá öðru hverju.
Einnig gera þessar stuttu fjarlægðir okkur hundafólkinu auðveldara að hittast með allan hópinn.
Mig langar líka að fá að sína þá í afkvæmahópi á sýningunni eftir áramót.
Ég vil ítreka það hvað ég er ofsalega ánægð með allar fjölskyldurnar sem fá hvolpana hjá mér.
Allt fólk sem ég treysti 100% fyrir litlu skottunum mínum. Ég þakka ykkur endalaust fyrir að velja VALSHAMARS RÆKTUN. Þið eru bestu meðmælin mín.![]()

Það hlýtur að vera yndisleg tilhugsun að allir hvolparnir eru komnir með góð heimili.
Til hamingju með þetta mín kæra.
Kærar kveðjur
Auður, Tinna & Æsuborga hvolparnir