VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ólar og útivist

02. september 2008 klukkan 01:25
Já. Fór til hennar Estherar í Hundaheimi og splæsti ROGZ hálsólum á hvolpana.  Hún átti bara 7 liti, þannig að við urðum að hafa einhverja ólíka með sama litinn. Það var nú ekki flókið reikningsdæmi. Oliver og Flugmannssonurinn eru með eins hálsbönd.
Því var spáð að þeir mundu djöflast þar til þeir losuðu sig úr ólunum, en þeir voru svona líka bara sáttir við hálsmenin.
Veðrið í dag var yndislegt og því tilvalið til útivistar. Hvolparnir fóru út í hollum. Ekki vitglóra í að setja þá alla út í einu.
Þeir skoppuðu um á pallinum og svo líka í grasinu. Það var mikið gaman. Unnur Freyja tók myndir af þeim úti að leika...á símann minn. Ég set þær inn hið fyrsta. Skarphéðinn,Pála og krakkarnir þeirra komu að hitta hann Valshamars-Víking....það var auðvitað ást við fyrstu sýn. Hvernig er annað hægt.Koss Víkingur verður ekkert smá heppinn. Hann fær að vera með Skarphéðni í vinnunni.
Það er lúxus.....veit ekki hversu mikill vinnufriður verðurSvalur
Berglind Gestsdottir
Myrra
 
Vá guð minn góður hvað ég er ástfangin af Rökkva (Vilja). Mig langaði alls ekki að fara og vildi svo óska þess að ég gæti tekið hann með mér heim en við komum öll á morgun svo það gerði það auðveldara að fara. En já ég gat sko ekki hætt að hugsa um hann áður en ég hitti hann, núna hugsa ég bara ekki um annað en hann, ég er bara á bleiku skýji yfir sæta prinsinum okkar:)

Hlökkum til að sjá ykkur á morgun,
Kv. Myrra og strákarnir
02. september 2008 klukkan 20:48

Skrifa athugasemd